sunnudagur, 9. nóvember 2014

Lögmann á torrentsíður, svona ferðu framhjá því

Download torbrowser og setja hann upp í tölvunni þinni.
wefslóðin er https://www.torproject.org

og með honum kemstu inn á síðurnar sem Sýslumaðurinn setti bann á
deildu.net breytti slóðinni strax í http://IceTracker.org þannig að sú síða lokaðist ekki.

UPPFÆRSLA:
http://pirateproxy.ws/ kemur í stað gömlu thepiratebay vefslóðanna [http://thepiratebay.org)
og þá getur þú haldið áfram að nota þann browser sem þú notar yfirleitt.

Ég persónulega sæki nánast aldrei Íslenskt efni á torrentsíðurnar. En talsvert af hugbúnaði og erlendum þáttum og bíómyndum.

Mér þykir vænt um Íslenska list svo sem, tónlist og leiklist. Þegar þú download Íslensku efni af torrent, þá ertu að grafa undan menningunni okkar. Tónlistamenn þurfa sín laun. Leikarar og aðrir sem starfa við kvikmyndagerð þurfa líka sín laun. 

Rithöfundar, þess vegna passa ég mjög vel hljóðbækurnar sem ég hef aðgang að.

Við viljum að Skálmöld haldi áfram að semja þungarokk, og að Bubbi haldi áfram að glamra á gítarinn. Við viljum halda áfram að sjá Íslenskar bíómyndir. Eða Íslenskt efni á sjónvarpsrásunum. Í hvert skipti sem við sækjum Íslenskt efni á torrentsíður, þá höggvum við skarð í bátinn sem menningin rær, og á endanum sekkur hann og Íslenskir listamenn deyja út.

Það vill enginn.

Styðjum Íslenska menningu og hættum að deila eða sækja Íslenskt efni á torrentsíðurnar, nema að höfundur leifi það.









ANNA

Engin ummæli:

Skrifa ummæli